Raflagnir fyrir fyrirtæki og stofnanir
Nýlagnir, endurnýjun og stækkanir á raflagnakerfum í atvinnuhúsnæði, iðnaði og opinberum byggingum.
Rafverktaki · Reykjavík
Rýmd býður upp á faglega rafverktakaþjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Við leggjum áherslu á gæði, öryggi og lausnir sem endast.
Fyrirtækið býður uppá heildarlausnir í rafiðnaði fyrir okkar viðskiptavini þar sem fagmennska er í fyrirrúmi.
Nýlagnir, endurnýjun og stækkanir á raflagnakerfum í atvinnuhúsnæði, iðnaði og opinberum byggingum.
Rýmd starfar á útboðsmarkaði og tekur að sér rafmagnshluta stærri verka samkvæmt útboðsgögnum og verklýsingum.
Utanumhald, samræming og eftirfylgni á rafmagnshluta framkvæmda undir meistaraábyrgð rafvirkjameistara.
Uppsetning lýsingarkerfa og stýribúnaðar í samræmi við hönnun og kröfur hvers verks.
Smáspennukerfi, tenglalagnir og tengd verk sem fylgja rafmagnshluta bygginga.
Þjónusta við fyrirtæki og stofnanir, viðhald og úrbætur á rafkerfum í rekstri.
Helstu verk undir meistaraábyrgð Sigsteins frá 2017–2026
Rýmd hefur unnið verk um allt land — 20 verk frá höfuðborgarsvæðinu til Vestmannaeyja, Snæfellsness og Jökulsárlóns.




















