Fara í meginmál

Um okkur

Heildarlausnir í rafiðnaði frá 2017

Rýmd býður upp á faglega rafverktakaþjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Við leggjum áherslu á gæði, öryggi og lausnir sem endast.

Fyrirtækið

Rýmd ehf. var stofnað árið 2017. Fyrirtækið býður uppá heildarlausnir í rafiðnaði fyrir okkar viðskiptavini þar sem fagmennska er í fyrirrúmi.

Fyrirtækið starfar á útboðsmarkaði ásamt því að þjónusta fyrirtæki og stofnanir.

Hjá Rýmd starfar öflugur hópur rafiðnaðarmanna ásamt tæknifræðingi undir stjórn Sigsteins Helga Magnússonar rafvirkjameistara.

Sigsteinn hefur starfað sem rafvirkjameistari frá 2006 og hefur áralanga reynslu sem verkefnastjóri í rafiðnaði.

Eigendur Rýmdar eru Sigsteinn H. Magnússon og Sigríður L. Hermannsdóttir.

Starfsmaður Rýmdar að störfum á byggingarstað
Eigendur
Sigsteinn H. Magnússon
Sigríður L. Hermannsdóttir
Fagleg ábyrgð
Sigsteinn Helgi Magnússon, rafvirkjameistari frá 2006.
  • Stofnað 2017
  • Rafvirkjameistari frá 2006
  • Útboðsmarkaður

Ertu með verk í undirbúningi?

Hafðu samband og við förum yfir umfang, tímalínu og næstu skref í rafmagnshluta verksins.

Hringja: 767-0900